Profil von JónasLilli_DanskiFotosBlogListen Extras Hilfe
26 Oktober

Myndasíða

Ég veit ekki hversu merkilegt það er en ég er var að búa mér til myndasíðu...... líklega eru þetta samt sömu myndir og er á þessari síðu

http://www.hi.is/~jog4/

Tékkit át
12 Oktober

Eitt enn

Helgi bróðir minn er 18 ára í dag.....Til hamingju Helgi

þið getið séð mynd af kappanum þar sem hann er með samba takta á fótboltavellinum

Halló

Ég hef náð þeim áfanga loksins á þessari önn að vera formlega byrjaður að læra...Takk Takk Takk

Við Elísa erum flutt í 101 rvk og erum loksins búin að koma okkur fyrir. Við erum nokkuð sátt við íbúðina sem er 40fermetrar og er í kjallara. Helsti gallin er hvað eldhúsið er lítið  og að þar er ekki gert ráð fyrir ELDAVÉL, jæja þá er það bara eitthvert megrunarfæði sem ég fæ á skyndibitastöðum borgarinnar í kvöldmat.
Og við erum einnig ekki með ÞVOTTAVÉL, maður verður því að þvo allt í höndunum....Vá ég vissi ekki að það væri svona erfitt, við skiptum vikunum á milli okkar og mín fyrsta þvotta vika var núna og það er erfiðast að þvo gallabuxur í höndunum..... ég er búin að kaupa svona þvottabretti og það gengur aðeins hraðar með því. Ég hef samt lísu grunaða um að geyma þvott einhverstaðar svo ég fái meiri hlutann í minni viku......ég verð að fara að rannsaka málið....Hmmmm ætti kanski að gá í óhreinatauið...

Sko ég er búin að komast að því að konur halda að óhreinn þvottur eigi að vera í óhreinataus körfunni en ekki á gólfinu DÖÖÖÖ kommon stelpur, óhreinn þvottur á gólfið takk fyrir......

ég komst að því um dagin að eftir að ég byrjaði að þvo í höndunum að hendurnar á mér verða svo mjúkar og sléttar.....ég held ég fari að nota svona handáburð......nei glætan....jú kanski ég pæli í því.

sumt sem ég geri nær bara engri átt....hafiði pælt í því afhverju þið getið einungis drukkið úr vatnskrana frá annari hliðinni???? þá meina ég að þið standið við vaskinn og hallið hausnum alltaf eins þegar þið drekkið beint úr krananum (eruði kanski svo snobbuð að þið notið glas).....og núna er frekar lítið pláss fyrir stóra rassin minn til að ég geti hallað mér á rétta hlið til að drekka úr krananum á klósettinu...... rassin rekst alltaf í vatnskassan á klósettinu og í veggin......en þó er ég farinn að ná nokkurri færni við þetta.... Frekar bý ég til dæld í veggin með skeið en að fara að drekka öfugu megin úr krananum.......

Annars allt gott að frétta og sjáumst

Ps. ég á bara tvö batterí og þegar ég er að nota fjarstýringarnar mínar sem eru 3 er ég í tómu tjóni að vera að skipta batteríunum á milli stýringa og jafnvel reikningstölvunar það er hörku púl að horfa á sjónvarp......
20 September

Á mánudaginn....

Þessi einfalda settning er mikið notuð hjá mér þessa dagana (og reyndar yfirleitt þegar ég er í skóla), ég nota hana yfir allt sem ég mögulega get. Ég get gefið nokkur dæmi.

Jónas ertu byrjaður á verkefninu? Neee ég byrja á mánudaginn.
ertu búin að lesa? Niiii ég geri það á mánudaginn.
Jónas ertu búin að taka til í herberginu? Jáhá og ég geri það aftur á mánudaginn. (líklegt ekki satt)

Verst er að ég er búin að vera á leiðinni að byrja á að lesa í mánuð og það á alltaf að gerast á mánudaginn, kosturinn við að segja þetta alltaf er sá að þessi góði mánudagur getur verið í náinni framtíð eða bara einhverntíma eftir jaaaa langan tíma...... já langan tíma.

Allavegana við sjáumst og heyrumst og ég lofa að blogga aftur á mánudaginn
05 September

Streðið byrjað

Ég byrjaði að sitja á skólabekk í gær...
en byrjaði þó fyrir 10 dögum í skólanum. Ég fór í ferð með samnemendum mínum ég kallaði þetta jarðfræði ferð en mínir NÁNUSTU kölluðu þetta nördaferð....

Þannig að ég er víst byrjaður að nördast aftur.....og verð víst að sætta mig við það.


09 August

Endalok....

núna er Interrailið okkar búið og mig langar að koma með stutta lýsingu.....
 
Við byrjuðum í landi þar sem við þektum til tungumáls og lestanna svo virtist að í hvert skipti sem við fórum suður yfir landamæri urðu lestir verri og merkingar verri o.fl.
Í þýskalandi var frekar auðvelt að taka lestir en landið er stórt og alltaf erfitt að vera í landi þar sem maður skilur ekki fyllilega tungumálið. Dæmi: við komum í lítinn bæ í suður Þýskalandi sem heitir Fussen okkur langaði til að skoða flottan kastala sem er rétt hjá bænum. Þegar við vorum búin að leita um allan bæin að gistingu og það var af nægu að taka, heimagisting, hótel og allt þar á milli þá var ein konan sem náði að útskýra fyrir mér að það væri maraþon dagin eftir í bænum..... ekki góð dagsetning fyrir heimsókn. Við ákváðum að finna stað til að gista úti...nei kom ekki bara þrumuveður...þannig að við tókum fyrstu lest til Munchen og vorum heppin við fundum gistheimili við lestarstöðina.
Daginn eftir ákváðum við að skoða Munchen á leiðinn heim og fórum til Austurríkis....til Innsbruck það var mjög gaman þar fallegur bær þægilegt fólk og ótrúleg FJÖLL.
Þaðan fórum við til Ítalíu og skoðuðum Flórens, tókum bílaleigubíl þaðan með strák sem ég kynntist í skólanum í köben og kærustunni hans og keirðum til San Gimigniano og gistum svo í Siena (rétt við plaza del Campo, held ég að það heiti) þannig að við tókum smá road trip um Toskana sem var frábært, ég var mjög hrifin af Siena.
Frá Flórens fórum við til Rómar....og þar gistum við rétt við Vatíkanið og það var frábær staður skoðuðum gömlu róm og stóðum svo í lengstu röð sem ég hef á ævi minni séð....þar sem við vorum svo nálægt Vatíkaninu ákváðum við að fara næstum 2klst áður en söfn Vatíkansins opna og standa í röð. Það borgaði sig við vorum samt sirka 150m frá innganginum og þegar ég kíkti síðast á röðina sá ég ekki endann og röðin var líka breið....gaman að sjá allt dótið þarna inni. Svo þegar við skoðuðum Péturskirkjuna þá skildi maður orðið STÓRT ......132m á hæð að innan.
Frá Róm fórum við til Ancona til að taka ferju til Grikklands. þegar til Grikklands var komið var algjört sjokk að taka lestir þar.....þannig að þegar við vorum komin til Aþenu leist okkur ekkert á að vera að eiða öllum þessum tíma í grískar lestir og keiptum okkur flugmiða frá Aþenu til Köben og slökuðum á á grískri eyju í nokkra daga og það var ekki slæmt.......en aftur á móti misstum við af Feneyjum, Salzburg, Munchen sem átti að skoða á leiðinni heim...við eyddum þá bara aðeins meiri tíma á Paros í staðin..
 
Þannig að þrátt fyrir að hafa misst af þessum stöðum þá erum við sátt og sæl með ferðina og hlakkar núna til að koma heim á klakan...sjáumst.
 
07 August

Hallo hallo

Godan daginn.
Nuna erum vid a sidasta degi a eyjunni Paros og vid siglum i kvold kl. 11.30 vid erum buin ad vera herna i fimm naetur og helstu afrek okkar eru ad hafa solbrunnid og og og svosem ekki mikid annad. Tannig ad vid erum buin ad vera i algjorri afsloppun herna. Vid keyptum okkur flugmida a morgun fra Athenu til Koben og tad er eins gott ad skipid verdi a rettum tima. nuna kiki eg ut ad hofn a fimm minutna fresti og hef alltaf a tilfinninguni ad vid missum af ferjunni...

Svo verdur bid i fimm daga adur en vid fljugum heim..... Tessir dagar verda notadir i ad heimsaekja Ola i Koben og hjalpa brodur lisu vid ad mala vegna tess ad hann er ad fara ad selja ibudina sina.

Eg vill tvi bidja Hr. Bjarnason ad senda mer sms med simanumeri og nuverandi heimilisfangi i DK......Eg er med gamla islenska numerid mitt...... Og svo a hann ad kaupa kassa af graenum Tuborg....fyrir okkur tegar vid komum i heimsokn.

Kvedja til Islands og okkur hlakkar til ad sja ykkur oll og vonum ad tad verdi haldin veisla fyrir okkur tegar vid komum. Vid erum nu tegar buin ad setja saman lista af atridum sem tarf ad framkvaema fyrir komu okkar og hann verdur sendur fjolskyldum ad Lyngheidi 8 og Telamork 43 fyrir komu okkar.

Kvedja ur solinni i Midjardarhafi........nananananana nananananana
 
Foto 1 von 8

Jónas Guðna

Beruf